812296
39
Zoom out
Zoom in
Previous page
1/43
Next page
OUTDOORCHEF.COM OUTDOORCHEF.COM
76 77
NOTKUNARLEIÐBEININGAR
Lesið leiðbeiningarnar vandlega áður en OUTDOORCHEF gasgrillið er tekið í notkun.
Lesið notkunarleiðbeiningarnar áður en grillið er tekið í notkun. Geymið notkunarleiðbeiningarnar á öruggum stað. Þær innihalda mikilvægar
upplýsingar um öryggi, notkun og viðhald.
MIKILVÆG ÖRYGGISATRIÐI
Allir sem nota grillið verða að kynna sér nákvæmlega hvernig kveikt er upp í því og fara eftir leiðbeiningunum. Börn mega ekki nota grillið.
Fylgja skal uppsetningarleiðbeiningunum nákvæmlega. Röng uppsetning getur haft hættulegar afleiðingar.
Gætið þess að hafa enga eldfima vökva og efni eða varagaskúta nálægt grillinu. Aldrei má koma grillinu eða gaskútnum fyrir í lokuðu rými án
loftræstingar.
Lesið leiðbeiningarnar vandlega áður en gasgrillið er tekið í notkun. Eingöngu má nota grillið utandyra og það verður að standa í öruggri
fjarlægð frá brennanlegum efnum, minnst 1,5 m frá.
GASKÚTAR
Aðeins má setja gaskúta sem vega að hámarki 8 kg þegar
þeir eru fullir á botnplötuna. Setjið kútinn á viðeigandi stað,
sjá uppsetningarleiðbeiningar. Gætið þess að allar skrúfaðar
tengingar séu þéttar.
Framkvæmið LEKAPRÓFUN áður en grillið er tekið í notkun og í
hvert sinn sem skipt er um gaskút.
Gaskútar mega ekki standa í hitastigi yfir 50 °C
og þá má aldrei
geyma í lokuðu rými eða kjallara. Fylgið öryggisreglunum sem
merktar eru á gaskútana.
ATHUGIÐ: Gangið úr skugga um að þrýstijafnarinn og gashylkið
séu leyfð til notkunar í viðkomandi landi. Notið eingöngu gashylki
samkvæmt gildandi staðli í viðkomandi landi.
Þar sem þéttibúnaður er mismunandi verður skrúfaða tengingin
ekki nægilega þétt ef ekki er notuð rétt gerð af þrýstijafnara og
gashylki. Gas lekur þá út og kviknað getur í því fyrirvaralaust vegna
opins elds eða neista. Af öryggisástæðum sem og vegna ábyrgðar
mælir framleiðandi með því að gasgrill sem tekin eru til sölu séu
yfirfarin og að þrýstistillir og gasslanga séu löguð að gildandi
reglum viðkomandi lands ef þess þarf.
ÖRYGGISLEIÐBEININGAR
Geymið þessar notkunarleiðbeiningar svo hægt sé að grípa til þeirra hvenær sem þörf krefur.
Farið eftir leiðbeiningum í kaflanum LEIÐBEININGAR VIÐ ÍKVEIKJU þegar grillið er tekið í notkun.
„Eingöngu til nota utandyra“
„Lesið notkunarleiðbeiningarnar áður en grillið er tekið í notkun“
VARÚÐ: Aðgengilegir hlutir geta verið mjög heitir. Haldið börnum fjarri“
„Grillið má ekki vera nálægt brennanlegum efnum þegar það er í notkun“
„Færið ekki grillið meðan á notkun stendur“
„Eftir notkun skal skrúfa fyrir gasið á gaskútnum“
Notið grillið aldrei undir þakskyggni.
Ýtið ekki grillum á hjólum yfir óslétt undirlag eða þrep.
Gangið úr skugga um að fitubakkinn sé alltaf alveg lokaður og fastur á meðan grillið er notað.
Notið hlífðarhanska þegar komið er við heita hluti.
Stillið gasstillihnappinn alltaf á og skrúfið fyrir gasstreymið á kútnum eftir notkun.
Gætið þess að gasstillihnappurinn sé á og lokað fyrir gasstreymið á kútnum þegar skipt er um gaskút. MIKILVÆGT: Grillið má ekki vera
nálægt neinum íkveikjuvöldum.
Athugið alla tengihluti samkvæmt leiðbeiningum í LEKAPRÓFUN þegar búið er að tengja nýjan gaskút við.
Stillið gasstillihnappinn á og skrúfið fyrir gasstreymið á kútnum ef grunur leikur á leka vegna óþéttra hluta. Látið skoða hlutina sem leiða
gas í sérverslun með gasvörur.
Ef merki eru um skemmdir eða slit á gasslöngunni verður að skipta um hana strax. Slangan verður að vera laus við brot og sprungur. Ekki
gleyma að slökkva með gasstillihnappinum og skrúfa fyrir gasið áður en slangan er fjarlægð.
Skiptið um slöngu og gasþrýstijafnarann eftir 3 ára notkun frá kaupdegi. Gætið þess að gasþrýstijafnarinn og slangan samræmist viðeigandi
EN-stöðlum (gasþrýstivatnsbúnaður EN 16129 / gasslöngu EN 16436).
Ráðlögð lengd gasslöngunnar er 90 cm og má ekki fara yfir 150 cm.
Gætið þess að loka aldrei fyrir loftraufarnar á grillinu eða lokinu. Aldrei má loka fyrir eða hylja loftopin á geymslustað gaskútsins.
„Ekki má breyta grillinu með neinum hætti“ Leitið til fagaðila ef grunur leikur á bilun.
Grillinu fylgir gasslanga og gasþrýstijafnari. Mikilvægt er að halda gasslöngunni frá heitum ytri hlutum grillsins. Ekki má vera snúið upp á
slönguna. Nauðsynlegt er að festa slönguna í þar til gerða festingu á grillum sem hafa slíka festingu.
Slangan og þrýstijafnarinn samræmast gildandi landslögum og EN-stöðlum (gasþrýstivatnsbúnaður EN 16129 / gasslöngu EN 16436).
Ef fullum afköstum er ekki náð og grunur leikur á stíflu í gasstreyminu skal leita til sérverslunar með gasvörur.
Notið grillið aðeins á traustu og öruggu undirlagi. Setjið grillið aldrei á viðargólf eða annað brennanlegt yfirborð meðan það er í notkun. Haldið
grillinu frá brennanlegum efnum.
Komið í veg fyrir mikla hitabreytingu plötunnar á grillum með granítplötur.
Ekki má geyma grillið nálægt mjög eldfimum vökvum eða efnum.
Ef grillið er geymt innandyra yfir vetur verður að fjarlægja gaskútinn. Grillið ætti að geyma á vel loftræstum stað utandyra, sem börn hafa ekki
aðgang að.
Komið grillinu fyrir í skjóli fyrir vindi ef hægt er áður en það er notað.
Þegar grillið er ekki í notkun ætti að geyma það undir yfirbreiðslu eftir að það hefur kólnað til að vernda það fyrir umhverfisáhrifum.
Yfirbreiðslur fást hjá söluaðilum.
Til að koma í veg fyrir raka skal fjarlægja yfirbreiðsluna eftir mikla rigningu.
max 500 mm
max Ø 310 mm
1
2
3
MIKILVÆGT:
Skráið hjá ykkur raðnúmer gasgrillsins á bakhlið þessara notkunarleiðbeininga. Staðsetning númersins fer eftir gerð grillsins og er að finna á
upplýsingalímmiðanum, sem er annaðhvort á fótastelli grillsins eða botnplötu þess.
Mikilvægt er að hafa raðnúmerið og vörunúmerið við hendina til að flýta fyrir fyrirspurnum, þegar varahlutir eru pantaðir og fyrir allar
ábyrgðarkröfur. Geymið notkunarleiðbeiningarnar á öruggum stað. Þær innihalda mikilvægar upplýsingar um öryggi, notkun og viðhald.
is
Total rate Qn=Σ
Typ:
PIN 0063 BP 3505
Outdoorchef AG
Eggbühlstrasse 28, 8050 Zürich
0063
Cat.I3 B/P
3+
Butane / Propane
G30 / G31
Serial No.:
Article No.:
30/37 mbar
Cat.I
Made in China
DISTRIBUTION
Outdoorchef Deutschland GmbH
Ochsenmattstr. 10 | 79618 Rheinfelden | Germany
39


Need help? Post your question in this forum.

Forumrules


Report abuse

Libble takes abuse of its services very seriously. We're committed to dealing with such abuse according to the laws in your country of residence. When you submit a report, we'll investigate it and take the appropriate action. We'll get back to you only if we require additional details or have more information to share.

Product:

For example, Anti-Semitic content, racist content, or material that could result in a violent physical act.

For example, a credit card number, a personal identification number, or an unlisted home address. Note that email addresses and full names are not considered private information.

Forumrules

To achieve meaningful questions, we apply the following rules:

Register

Register getting emails for Outdoorchef Australia 455 G at:


You will receive an email to register for one or both of the options.


Get your user manual by e-mail

Enter your email address to receive the manual of Outdoorchef Australia 455 G in the language / languages: English, German, Dutch, Danish, French, Italian, Swedish, Norwegian, Finnish as an attachment in your email.

The manual is 7.99 mb in size.

 

You will receive the manual in your email within minutes. If you have not received an email, then probably have entered the wrong email address or your mailbox is too full. In addition, it may be that your ISP may have a maximum size for emails to receive.

Others manual(s) of Outdoorchef Australia 455 G

Outdoorchef Australia 455 G Installation Guide - All languages - 7 pages


The manual is sent by email. Check your email

If you have not received an email with the manual within fifteen minutes, it may be that you have a entered a wrong email address or that your ISP has set a maximum size to receive email that is smaller than the size of the manual.

The email address you have provided is not correct.

Please check the email address and correct it.

Your question is posted on this page

Would you like to receive an email when new answers and questions are posted? Please enter your email address.



Info